Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lionsklúbburinn Eik heimsækir 2. bekk

20.11.2009
Lionsklúbburinn Eik heimsækir 2. bekk

2. bekkur fékk góða gesti í heimsókn fimmtudaginn 19. nóvember en það voru konur úr Lionsklúbbnum Eik í Garðabæ. Þær sögðu nemendum frá starfi sínu og gáfu þeim litabók sem þær gefa sjálfar út. Nemendur eru hvattir til að skoða bókina vel, lita myndinrar  og sýna fjölskyldunni enda er þar að finna mörg góð ráð t.d. um það hvað gott er að gera þegar kviknar í.  Núna er að fara í hönd sá tími þegar mikið er um kerti og ljós og því gott að vita hvernig bregðast á við ef eitthvað kemur upp á.  Þökkum þeim kærlega fyrir gjöfina.

Kíkið á myndirnar frá heimsókninni.

Til baka
English
Hafðu samband