Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bangsadagur á bókasafninu

02.11.2010
Bangsadagur á bókasafninu

Bangsadagurinn var haldinn hátíðlegur í Hofsstaðaskóla þann 27. október. Krakkarnir mættu með bangsana sína í skólann og eldri nemendur tóku að sér að lesa bangsasögur fyrir nemendur í 1. og 2. bekk á bókasafni skólans.

Bókasöfn á Norðurlöndum hafa haldið bangsadaginn hátíðlegan síðan árið 1998. Það er einkar viðeigandi að tengja bangsa og bókasöfn á þennan hátt því bangsar eru söguhetjur margra vinsælla barnabóka. Auk þess eru bangsar eitt vinsælasta leikfang sem framleitt hefur verið og flestir eiga góðar minningar tengdar uppáhalds bangsanum sínum. Bókasafnsbangsinn í ár heitir Sigfríð.

Kíkið endilega á myndirnar sem tekna voru á bangsadaginn á bókasafninu þennan dag.

Til baka
English
Hafðu samband