Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hrekkjavökudansleikur 7. bekkja

10.11.2010
Hrekkjavökudansleikur 7. bekkja

Hrekkjavökuhátíð 7. bekkja Hofsstaðaskóla var haldin fimmtudagskvöldið 4. nóvember s.l. Hátíðin tókst mjög vel og skemmtu allir sér konunglega. Nokkrir krakkar í 7. bekk auk eins foreldris sáu um dansfjörið og krakkarnir sáu sjálfir, með hjálp foreldra, um að gera veisluborðið sem girnilegast.

Hugmyndin að hátíðinni er fengin úr enskukennslu skólans en þar eru kynntar helstu hátíðir í enskumælandi löndum. Krakkarnir sáu sjálfir um að útbúa skreytingar og var salurinn, alrýmið og inngangurinn skreyttur með allskyns ófreskjum og draugalegum myndum.
Ákveðið var að bjóða 7. bekkjum Flataskóla og Sjálandsskóla í teitið og hrista þannig saman hópinn sem hittist í Garðaskóla og Sjálandsskóla næsta vetur. Hópurinn náði mjög vel saman og dönsuðu og trölluðu allir þannig að ómögulegt hefði verið fyrir ókunnugan að sjá hver var úr hvaða skóla. Veittar voru viðurkenningar fyrir flotta búninga og má skoða myndirnar á myndasíðu skólans.

Skoða myndir

Til baka
English
Hafðu samband