Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hjólum eða göngum í skólann

02.05.2011
Hjólum eða göngum í skólannNemendur Hofsstaðaskóla eru hvattir til að hjóla eða ganga í skólann 4. – 24. maí en þá fer fram hvatningarverkefni ÍSÍ „Hjólað í vinnuna“. Eins og undanfarin ár munu starfsmenn skólans taka þátt í verkefninu. Samhliða því fer fram keppni milli bekkja á yngra og eldra stigi þar sem veittar verða viðurkenningar fyrir bestan árangur.
Dagleg hreyfing verndar og bætir heilsuna auk þess verður aðkoma barnanna í skólann öruggari þar sem umferð við skólann minnkar.
Til baka
English
Hafðu samband