Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

1. dagur gekk vel í skólabúðunum

04.03.2014
1. dagur gekk vel í skólabúðunum

Ferðin í skólabúðirnar gekk vel. Allir eru hressir og kátir og dagskráin er hafin af fullum krafti. Nemendur byrjuðu á því að koma sér fyrir og fá sér smá hressingu áður en dagskráin hófst. Að sjálfsögðu fengu svo allir rjómabollur í kaffitímanum og lögðust svo sáttir og sælir til hvílu eftir að skemmtilegri kvöldvökunni lauk. Við hlökkum að sjálfsögðu til að fylgjast með fjörinu í skólabúðunum og óskum þeim góðrar skemmtunar. 
Við gerum ráð fyrir að birta fréttir og myndir frá hópnum eftir því sem þær berast á sérstakri síðu Reykir í Hrútafirði 2014.

Til baka
English
Hafðu samband