Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Árshátíð 7. bekkja

06.04.2017
Árshátíð 7. bekkja

Glæsileg, frumleg, fjörug og skemmtileg árshátíð nemenda í 7. bekk í Hofsstaðaskóla fór fram miðvikudagskvöldið 5. apríl. Hefð er fyrir því að nemendur fái að velja þema og að þessu sinni varð DISNEY fyrir valinu.
Nemendur sjá sjálfir um að búa til skreytingar og skreyta salinn fyrir kvöldið og útbúa matinn. Þetta gera þeir undir dyggri leiðsögn list- og verkgreinakennara. Nemendur sjá jafnframt um skemmtiatriðin en sá siður hefur skapast að slá upp hæfileikakeppni þar sem þeim sem áhuga hafa býðst að láta ljós sitt skína.
Atriðin voru fjölbreytt og skemmtileg í ár og fóru æfingar fram á göngum skólans í frímínútum, í salnum og hvar sem því var við komið fram að árshátíð.
Oliver Emil, Jón Hugi og Lúðvík Guðni voru tæknimenn og sáu þeir um að aðstoða keppendur í tengslum við tónlist, lýsingu og útfærslu á atriðinum. Halldór, Gabríel Log voru sviðsmenn og sáu þeir um að allt gengi vel baksviðs. Til þess að stórsýning sem þessi gangi snurðulaust fyrir sig þurfa allir nemendur og starfsmenn að leggjast á eitt og hjálpast að. Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur og voru því allir sigurvegarar þetta kvöld sem gekk með eindæmum vel fyrir sig.
Heiðursgestir kvöldsins voru foreldrar nemenda sem fengu að njóta glæsilegra skemmtiatriða og góðra veitinga.

Dómnefnd kvöldsins skipuðu: Námsráðgjafi skólans og þrír fyrrverandi nemendur skólans. Þeir áttu úr vöndu að ráða því allir skemmtikraftar kvöldsins stóðu sig mjög vel og atriðin þátttakendum til mikils sóma.

Veittar voru viðurkenningar fyrir fjögur atriði. Skemmtilegasta atriðið var myndbandið Sketchar sem Hrafnkatla, Katla, Katrín Svava og Signý gerðu.
Gabríel Logi fékk viðurkenningu fyrir frumlegasta atriðið. Hann sýndi popping dans sem er mjög frumlegur.

Danshópurinn KMA fékk viðurkenningu fyrir glæsilegasta atriðið en í honum eru Katla, María og Andrea.
Fjörugasta atriðið var kosið myndbandið Grunnskólaárin en það bjuggu til Andrea, Emilía, Eva, Kristín Helga, Hekla Ylfa, Hekla Sóley, Halldóra Sara, Silja, Snædís María og Sonja.

Að borðhaldi loknu var slegið upp diskóteki. Þá var foreldrum boðið í kaffi og konfekt á kaffistofu starfsfólks á meðan nemendur stigu danssporin.

Myndir frá árshátíðinni eru á myndasíðu 7. bekkja

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband