Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kórstarf í Hofstaðaskóla

21.09.2023
Kórstarf í HofstaðaskólaKór Hofsstaðaskóla er að hefja vetrarstarfið. Kórinn er fyrir nemendur í 5.-7. bekk. Í kórnum verða sungin fjölbreytt lög, sígild og popplög. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri. Fastir liðir eru að sungið verður á bókasafni Garðabæjar á Degi íslenskrar tungu og settur verður upp söngleikur á vordögum.
Áhugasamir en óákveðnir nemendur eru velkomnir á æfingu til að kynna sér kórinn áður en ákvörðun um að vera með er tekin.
Æfingar verða á mánudögum kl. 14.00 – 15.00 eða í beinu framhaldi af skólastarfinu. Fyrsta æfing verður mánudaginn 2. okt.
Stjórnandi kórsins er Unnur Þorgeirsdóttir tónmenntakennari
Til baka
English
Hafðu samband