Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinaleikskólar í heimsókn

09.11.2015
Vinaleikskólar í heimsókn

Nemendur af vinaleikskólunum Hæðarbóli, Lundabóli og Ökrum hafa núna komið í sína fyrstu formlegu skólaheimsókn í Hofsstaðaskóla. Börnin tóku þátt í samsöng, skoðuðu stofurnar hjá 1. bekk, fengu fræðslu um bókasafnið auk þess að hlusta á upplestur. Það var gaman að fá þessa flottu og áhugasömu leikskólanemendur í heimsókn. Í desember munu fyrstu bekkingar svo heimsækja vinaleikskólana.

Sjá myndir á myndasíðu 1. bekkja

Til baka
English
Hafðu samband