Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vettvangsferð að Vífilsstaðavatni

01.10.2021
Vettvangsferð að Vífilsstaðavatni

Fimmtudaginn 30. september fóru nemendur 7. bekkja í vettvangsferð að Vífilsstaðavatni. Ferðin hófst á því að nemendur ásamt kennurum og aðstoðarmönnum hjóluðu að vatninu. Þar tók Bjarni Jónsson fiskifræðingur á móti hópnum og leiðbeindi hann og kennarar hópsins nemendum með ýmis verkefni sem m.a. fólu í sér að skoða umhverfið og rifja upp örnefni, hjálpa Bjarna við að ná fiskum úr neti og skoða þá. Jafnframt voru tekin sýni úr læknum og vatninu til að rannsaka nánar í skólanum.

Dagana eftir var svo unnið við að greina sýnin í víðsjá með greiningarlyklum. Nemendur fengu einnig að kryfja fisk úr vatninu og lærðu í leiðinni um líffæri fiska. Vinnan var afar skemmtileg og lærdómsrík að mati nemenda.

Sjá fleiri myndir í tengslum við Vífilsstaðavatn á myndasíðu 7. bekkja 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband