Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Niðurstöður úr Bebras áskorun

25.11.2021
Niðurstöður úr Bebras áskorun

Bebras áskorunin fór fram dagana 8. -12. nóvember síðastliðinn. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að tengja rökhugsun forritunar inn í skólastarfið. Að þessu sinni voru það 10 bekkir í Hofsstaðaskóla sem tóku þátt eða alls 186 nemendur í 4. - 7. bekk. Nú er búið að yfirfara niðurstöðurnar og stóðu nemendur skólans sig vel í glímunni við að leysa þrautirnar. Áhugasamir nemendur geta skráð sig inn á bebras.is með sama notendanafni og lykilorði og þeir notuðu í áskoruninni ef þeir vilja sjá stigin sín.

Þeir nemendur sem voru stigahæstir í sínum árgangi að þessu sinni voru:
4. bekkur:
Arney (náði hæsta skori í flokknum 108 stigum), Ketill Máni, Auður og Bjarney öll í 4. ÁS.
5. bekkur: (Tók þátt í flokknum 3. og 4. bekkur)
Brynjar Þór 5. AÞ, Erla Rún 5. AÞ og Hildur 5. RBG náðu hámarksfjölda stiga.
6. bekkur:
Kári Kristjánsson 6. ÖM, Kristjana Emma 6. HBS og Tinna 6. ÖM . Hæsta skor sem náðist hjá 6. bekk í skólanum okkar í þessum flokki var 111 stig.
7. bekkur: (Tók þátt í flokknum 5. og 6. bekkur)
Hrafn Steinsson í 7. VÓ náði hæsta skori í flokknum 129 stig af 135 mögulegum en næst á eftir honum komu Hekla Rán 7. VÓ, Bjarki Freyr 7. SGE og Reynir Máni 7. SGE.

Alls voru það 2.102 nemendur í 24 skólum á Íslandi sem tóku þátt. Fjöldi stúlkna var 959 og drengja 1.117. Áskorunin skiptist upp í 6 flokka eftir þyngdarstigi/aldursviðmiði og skiptust þrautirnar í hverjum flokki upp þrjá mismunandi erfiðleikaflokka A, B og C.

ALDURSHÓPUR

FJÖLDI SPURNINGA

HÁMARKSFJÖLDI STIGA

HÆSTA SKOR

1. og 2. bekkur (6-7 ára)

9

81

81

3. og 4. bekkur (8-9 ára)

12

108

108

5. og 6. bekkukr (10-11 ára)

15

135

129

7. og 8. bekkur (12-13 ára)

15

135

123

9. og 10. bekkur (14-15 ára)

15

135

117

Framhaldsstig (16- 18+)

15

135

117

Á myndasíðu skólans eru myndir frá 4. ÁS og 7. SK

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband