Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

HS leikar 10. og 11. nóvember

07.11.2022
HS leikar 10. og 11. nóvemberFimmtudaginn 10. nóvember og föstudaginn 11. nóvember verða hinir árlegu Hofsstaðaskólaleikar eða HS-leikar. Báða dagana hefst skóladagurinn kl. 8:30 og honum lýkur kl. 13:45.
Regnboginn hefst strax að loknum skóladegi fyrir þá sem þar eru skráðir. Bæði stundatöflur og nemendahópar breytast.
Lögð er áhersla á samvinnu nemenda í aldursblönduðum hópum, gleði og gaman í bland við það að leysa fjölbreytt verkefni. Hóparnir fara á 19 stöðvar í íþróttahúsinu og 19 stöðvar í skólanum sitthvorn daginn.
Nemendur þurfa ekki að hafa með sér skólatösku þessa daga, aðeins nesti og vatnsbrúsa í bakpoka.
Á föstudeginum verður pizza í matinn. Þeir sem eru ekki í mataráskrift geta keypt pizzumiða á 850 kr. Miðarnir verða seldir í matsalnum frá mánudegi til miðvikudags.
Til baka
English
Hafðu samband