Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

JÓLA-SKÓLAMATUR

06.12.2023
JÓLA-SKÓLAMATURFimmtudaginn 14. desember verður boðið upp á hátíðarmáltíð í skólanum fyrir alla áskrifendur.
Á matseðlinum í ár er kaldur kalkún með salvíusmjöri, brúnaðar kartöflur, eplasalat og heit sveppasósa ásamt hefðbundnu meðlæti og ísblóm í eftirrétt.
Veganréttur verður Wellington, brúnaðar kartöflur, eplasalat og heit sveppasósa og vegan ís.
Börn sem eru í sérfæði vegna mjólkuróþols/ofnæmis fá íspinna í stað ísblóms.
Þeir sem ekki eru í áskrift en óska eftir að taka þátt í hátíðarmáltíðinni geta keypt sérstaka matarmiða í mötuneyti skólans frá 6.-12. desember milli kl.9.00 og 11.00. Miðinn kostar 1.000 kr. og aðeins er hægt að greiða með peningum!
Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Skólamatar, Sími: 420-2500 eða á skolamatur@skolamatur.is
Til baka
English
Hafðu samband