Tónmenntakennari 2025-2026
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir tónmenntakennara í 1. – 7. bekk skólaárið 2025 – 2026. Í skólanum eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Skipuleggur og sinnir námi og kennslu í tónmennt
• Sér um samsöng nemenda
• Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
• Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og fagfólk
• Tekur þátt í teymisvinnu með öðrum kennurum og fagaðilum sem koma að nemendum
• Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
• Sérhæfing í kennslu í tónmennt í grunnskóla
• Reynsla af kennslu í grunnskóla
• Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum og góð tölvukunnátta
• Lipurð og færni í samskiptum ásamt metnaði í starfi
• Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
• Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
• Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
Umsóknarfrestur er til 27. mars 2025. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk, frítt í sund, bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.