Deildarstjóri stoðþjónustu
12.03.2025
Hofsstaðaskóli í Garðabæ auglýsir eftir framsæknum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna starfi deildarstjóra stoðþjónustu. Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og hluti af stjórnendateymi skólans. Í Hofsstaðaskóla eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 85 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Skipuleggur og stýrir stoðþjónustu skólans
• Vinnur með og undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
• Er fagfólki skólans ráðgjafi varðandi námsaðstæður, stuðning og skipulag kennslu
• Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
• Fylgir eftir gerð einstaklingsnámsskráa og er ráðgefandi aðili við gerð þeirra
• Ýtir undir jákvætt viðhorf til skóla margbreytileikans
• Skipuleggur og verkstýrir stuðningsfulltrúum og vinnur í náinni samvinnu með sálfræðingum talmeinafræðingum og öðrum sérfræðingum sem koma að málefnum nemenda við skólann
• Fylgir eftir sértækum verkefnum innan stoðþjónustunnar sem tengjast nemendum
• Er tengiliður nemenda samkvæmt farsældarlögum
• Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við aðra stjórnendur og samstarfsfólk
• Tilfallandi verkefni sem skólastjóri felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf í grunnskólakennarafræðum
• Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum
• Reynsla af sérkennslu
• Stjórnunarreynsla er æskileg
• Mikill áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
• Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð hæfni í ræðu og riti á íslensku
• Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
Umsóknarfrestur er framlengdur til 11. apríl. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk, frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.