Upplýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnustöðvunar grunnskólakennara
14.05.2014
![Upplýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnustöðvunar grunnskólakennara Upplýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnustöðvunar grunnskólakennara](/library/Myndir/Frettamyndir-2012_2013/Hofsstaðaskóli.jpg?proc=ContentImage)
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Félag grunnskólakennara boðað vinnustöðvun þrjá daga, 15. maí, 21. maí og 27. maí.
Þetta þýðir að skólahald fellur niður þessa daga ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma.
Starfsemi tómstundaheimila verður óbreytt verkfallsdagana.
Komi til vinnustöðvunar mun kennsla á vegum Tónlistarskóla Garðabæjar sem alla jafna fer fram inn í grunnskólum fara fram í húsnæði Tónlistarskólans að Kirkjulundi 11. Kennsla nemenda á Álftanesi fer eftir sem áður fram í húsnæði Tónlistarskólans á Álftanesi.
Við biðjum ykkur að fylgjast vel með fréttum að kvöldi nk. miðvikudags og morgni fimmtudags.
Skóladeild Garðabæjar