Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Stórsýning

26.09.2008
Stórsýning

Föstudaginn 26. september sá 6. L.K. um að skemmta nemendum eldri deildar á sal skólans. Þau voru greinilega undir áhrifum af alþjóðlegu barnabókahátíðinni Draugar út í mýri sem stóð yfir vikuna 19. -23. september því þau kusu að setja á svið draugaleikrit. Stífar æfingarnar í vikunni skiluðu greinilega árangri því krakkarnir stóðu sig eins og atvinnuleikarar.
Svo vel tókst til að nokkrir töldu best að halda sig sem næst umsjónarkennara sínum meðan á sýningunni stóð. Til hamingju 6. L.K. með stórglæsilega sýningu. Þið hafið sannanlega sett viðmiðið fyrir bekkina sem á eftir koma.

Til baka
English
Hafðu samband