Tvenn verðlaun í NKG
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) er keppni í nýsköpun fyrir alla aldurshópa grunnskólans. Keppnin fer fram allan ársins hring. Markmið keppninnar er að virkja sköpunarkraft barna og unglinga í landinu. Lokahóf er á haustin að undangenginni vinnusmiðju þar sem hugmyndir sem komast í úrslit eru útfærðar frekar með aðstoð leiðbeinenda.
Sjö nemendur úr Hofsstaðaskóla komust áfram í 52 manna úrslit keppninnar og tóku þátt í vinnusmiðjunni sem haldin var um miðjan september. Hugmyndir krakkanna voru fjölbreyttar og skemmtilegar.
Lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda var síðan haldið sunnudaginn 28. september. Þá voru veitt verðlaun í fjórum flokkum:
- Almennt
- Hugbúnaður og tölvuleikir
- Orka og umhverfi
- Slysavarnir
Tveir nemendur hrepptu verðlaun. Það voru þær: Rakel Björk Björnsdóttir sem hreppti 1. sætið í flokknum slysavarnir með hugmynd sína blysvörn og Kristín Yuxin Bu sem lenti í 3. sæti í flokknum almennt fyrir hugmynd sína Hlaupahjólalás.
Krakkarnir í Hofsstaðaskóla, undir dyggri stjórn Sædísar Arndal smíðakennara, voru mjög duglegir að taka þátt því alls voru sendar 250 hugmyndir úr Hofsstaðaskóla í keppnina. Skólinn lenti því í 3. sæti hvað varðar hlutfall nemenda sem sendir inn hugmyndir.
Til hamingju krakkar og haldið áfram á þessari braut.