Íslensku menntaverðlaunin
Forseti Íslands afhendir ár hvert Íslensku menntaverðlaunin en til þeirra var stofnað af forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni á grundvelli hugmynda sem hann kynnti í nýársávarpi 1. janúar 2005. Í ár verða Íslensku menntaverðlaunin afhent í Hofsstaðaskóla.
Íslensku menntaverðlaunin eru einkum bundin við grunnskólastarfið. Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum:
- Skólum sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi
- Kennurum sem skilað hafa merku ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað fram úr.
- Ungu fólki sem í upphafi kennsluferils hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt.
- Höfundum námsefnis sem stuðlað hafa að nýjungum í skólastarfi.
Að þessu sinni fer afhendingin fram hér í Hofsstaðaskóla fimmtudaginn 28. maí kl. 19:00-21:00. Forsetaembættið býður öllum starfsmönnum Hofsstaðaskóla og nemendum í 6. bekk að vera viðstöddum athöfnina ásamt fulltrúum í bæjarstjórn og skólanefnd, auk starfsmanna á skólaskrifstofu.
Blásarasveit Hofsstaðaskóla leikur nokkur lög undir stjórn Jóhanns Björns Ævarssonar tónlistarkennara og Kvenfélag Garðabæjar sér um kaffiveitingar.