Dagur umhverfisins
19.04.2010
Í tilefni af degi umhverfisins mánudaginn 25. apríl hefur umhverfisnefnd skólans mælst til þess að nemendur skólans taki þátt í fjölbreyttum umhverfisverkefnum inni sem úti undir stjórn umsjónarkennara. Sérstakur útikennsludagur verður fimmtudaginn 29. apríl frá kl. 8.30-9:50 og tengist hann listadögum. Þá verða nemendur sýnilegir við vinnu sína.
Dagur umhverfisins er haldinn á fæðingardegi Sveins Pálssonar, fyrsta íslenska
náttúrufræðingsins og þess manns sem einna fyrstur hvatti til aðgerða gegn
skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun.
Í mars funduðu deildarstjórar með nemendum í umhverfisnefndinni og komu margar góðar hugmyndir að verkefnum og umræðupunktum frá þeim:
- Útíkennsla
- Ratleikur
- Hjólatúr
- Vefrallý
- Horfa á heimildaþátt/fræðslumynd
- Útileikjadagur
- Íþróttadagur
- Umferðadagur
Umræðupunktar:
- Hvað er hrein orka?
- Hvernig get ég nýtt hreina orku?
- Orkan og ég?
- Hvaða orkugjafar gætu komið til í framtíðinni?
- Loftgæði í næsta nágrenni mínu? Hvenig má bæta loftgæði við skólann minn?
- Áhrif loftslagsbreytinga