Tíu hugmyndir áfram í NKG
Nemendur í Hofsstaðaskóla hafa verið duglegir undanfarin ár að senda inn hugmyndir í NKG Nýsköpunarkeppni Grunnskólabarna. Á síðastliðnu skólaári sendu nemendur skólans inn 480 hugmyndir en alls bárust um 1600 hugmyndir í keppnina í ár. Dómnefnd hefur farið yfir allar innsendar hugmyndir og valið 44 hugmyndir sem komast áfram í keppninni.
Nemendum sem eiga þær hugmyndir sem komast áfram er svo boðið að taka þátt í vinnusmiðju 16. og 17. september í Háskóla Íslands. Lokahóf verður haldið eftir að vinnsusmiðju lýkur þann 19. september og verður þá tilkynnt hverjir vinna til verðlauna.
Eftirtaldir 11 nemendur og tíu hugmyndir úr Hofsstaðaskóla 2009-2010 eru í þessum 44 manna hópi sem fer í vinnusmiðjuna:
- Annalísa Hermannsdóttir
- Arnar snær Þórsson
- Bryndís Rósa og Ástríður
- Helga Þ. Guðjónsdóttir
- Helgi Snær Agnarsson
- Jón Kristinn Örnólfsson
- Rannveig Eva Snorradóttir
- Róslind Antonsdóttir
- Valgerður Lilja Björnsdóttir
- Petrína Guðmundsdóttir
Við óskum ykkur krakkar innilega til hamingju með árangurinn.