Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Unicef hreyfing

13.05.2011
Unicef hreyfing

Nemendur í 5. – 7. bekk í Hofsstaðaskóla tóku þátt í verkefni í samstarfi við UNICEF á Íslandi sem kallast UNICEF- hreyfing. Hreyfingin fór fram föstudaginn 13. maí milli 11:30 og 12:30 en þá fóru nemendur og kennarar eldri deildar út og hreyfðu sig saman.
Með þátttöku sinni vill skólinn ná tveimur markmiðum:

  • Fræða nemendur um þurfandi börn um allan heim í gegnum holla hreyfingu
  • safna fé fyrir jafnaldra sína sem búa við bág kjör og lakar aðstæður.

Umsjónakennarar ræddu við nemendur um aðstæður barna, sýndu myndband um aðstæður jafnaldra þeirra í fátækari löndum og um að láta sig velferð annarra varða.
Nemendur söfnuðu áheitum (ekki skylda) úr sínu nánasta umhverfi vegna verkefnisins. Verkefnið var að hlaupa, ganga, skokka, valhoppa meðfram Arnarneslæknum frá Hofsstaðaskóla og niður undir Hafnarfjarðarveg og til baka. Önnur leiðin er um 0,8 km og fengu nemendur límmiða í þar til gert kver við hvorn enda og þannig var fylgst með framvindunni. Síðan er spurningin hversu marga hringi viðkomandi fer? Tveir miðar fyrir hvern hring.
Með þátttöku einni saman er verið að styrkja börn um allan heim, því góður hugur, samkennd og þátttaka er mikil gjöf.
Það voru áhugasamir og glaðir nemendur í Hofsstaðaskóla sem tóku þátt í UNICEF hreyfingunni. Sjá myndir

Til baka
English
Hafðu samband