Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti
![Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Gegn-einelti/2011 eineltisdagur 006.jpg?proc=ContentImage)
Eineltisteymi og stjórnendur Hofsstaðaskóla lögðu til við kennara að 8. nóvember 2011 væri tileinkaður umræðu og verkefnum gegn einelti sbr. Þjóðarsáttmála um baráttu gegn einelti http://gegneinelti.is/
Ýmis konar vinna fór fram í hverjum árgangi fyrir sig. Kennarar vöktu nemendur til umhugsunar um málefnið og ræddu um einelti, einkenni þess, afleiðingar og leiðir til lausna. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni sem sjá má á meðfylgjandi myndum. Námsráðgjafi fór í alla 5. bekki, ræddi við nemendur um einelti og birtingarmyndir þess og veltu nemendur fyrir sér muninum á stríðni og einelti. Nemendur eru kallaðir til ábyrgðar og samvinnu um að útrýma einelti úr skólanum.
Forvarnir gegn einelti eru taldar skila hvað bestum árangri í baráttunni við einelti. Samtakamáttur barnanna sjálfra, foreldra og skóla skiptir hér mestu máli. Við biðjum foreldra að leggja sitt af mörkum og minna börnin á að koma ávallt fram af virðingu og prúðmennsku. Ekkert réttlætir neikvæða framkomu og öll börn eiga rétt á að þeim líði vel í skólanum sínum.
Við hvetjum foreldra til að skoða bækling Heimilis og skóla um einelti: http://www.heimiliogskoli.is/media/files/1255963384/God_rad_til_foreldra.pdf
Minnum einnig á eyðublaðið „Tilkynning – grunur um einelti“ sem foreldrar geta fyllt út með barni sínu telji þeir að verið sé að beita það ofbeldi af einhverju tagi í skólanum eða í skólatengdum þáttum. /lisalib/getfile.aspx?itemid=124567
Sjá myndir á myndasíðu skólans