Árlegir fjölgreindarleikar
29.10.2012

Á leikunum er fjölgreindakenning Gardners höfð að leiðarljósi.
Nemendum er skipt upp í lið sem í eru 13-14 nemendur úr öllum árgöngum. Elstu krakkarnir eru fyrirliðar. Liðið vinnur saman að því að leysa fjölbreyttar þrautir sem reyna á ýmsa hæfileika eins og samvinnu, fylgja fyrirmælum, hoppa, jafnvægi svo eitthvað sé nefnt. Allir í liðinu þurfa að vinna saman að lausn þrautanna. Á hverri stöð fær liðið stig fyrir frammistöðu og framkomu liðsmanna.
Markmið leikanna er m.a. að allir fái að njóta sín með einhverjum hætti og efla kynni við aðra í skólanum í leiðinni.
Annan daginn vinna nemendur í íþróttahúsinu og hinn daginn í skólanum samtals á 34 stöðvum.
Báða dagana lýkur skóladegi kl. 13:30 hjá öllum nemendum. Tómstundaheimilið Regnboginn hefst strax að loknum Fjölgreindarleikum fyrir þá sem þar eru skráðir. Nemendur þurfa ekki að hafa með sér skólatösku í skólann þessa daga aðeins poka/tösku með nesti. Matur verður fyrir þá sem eru í áskrift en hinir hafa með sér hádegisnesti.