Jóladagatal vísindanna
13.12.2012
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands hefur opnað nýtt jóladagatal, jóladagatal vísindanna sem ætlað er að glæða áhuga yngri kynslóðarinnar á undrum raunvísinda og verkfræði. Um er að ræða stutt myndbönd með skemmtilegum tilraunum í efnafræði, eðlisfræði og verkfræði sem auðvelt er að framkvæma í heimahúsum. Nemendur í eðlisfræði, umhverfis- og byggingarverkfræði, lífefnafræði og efnafræði, þar á meðal úr Sprengjugenginu, hafa unnið myndböndin og sjá um að kynna tilraunirnar.
Myndböndin eru ætluð krökkum á öllum aldri og markmiðið er að auka áhuga þeirra á raunvísindum með það fyrir augum að fjölga nemendum í þeim greinum til framtíðar.
Við í Hofsstaðaskóla hvetjum nemendur og foreldra til þess að skoða myndböndin og prófa tilraunirnar heima.Hér er hægt að nálgast jóladagatal vísindanna
Dæmi um einfalda og skemmtilega tilraun