Þemakennd enska
Nemendur í 5.bekk taka fyrir nokkur þemu í enskunáminu á hverjum vetri og vinna verkefni í tengslum við það. Þannig læra þeir orðaforða í tengslum við þemað og byggja með markvissum hætti ofan á þann orðaforða sem fyrir var. Í kennslunni er lögð áhersla á fjölbreytileika þegar unnið er með skilning, talað mál, ritun og lestur. Hér fyrir neðan er örstutt umfjöllun um þau þemu sem nemendur hafa glímt við en á myndasíðu 5. bekkja má sjá myndir af þeirri vinnu.
Ævintýrin
Nemendur hlustuðu fyrst á söguna um Jack and the beanstalk og unnu verkefni úr henni. Næst var þeim skipt í hópa þar sem hver hópur fékk eitt ævintýri til að lesa. Hóparnir skiptu svo hlutverkum á milli sín og settu upp glæsileg leikrit byggð á ævintýrunum.
Fötin
Eftir að hafa farið yfir orðaforðann í tengslum við fötin settu nemendur upp tískusýningu. Glæsilegar fyrirsætur gengu svo um stofuna og stoppuðu til að segja frá klæðnaði sínum á ensku. Myndir voru teknar af öllum fyrirsætunum sem síðar skrifuðu lýsingu á fatnaði sínum á ensku.
Íþróttir
Eftir að hafa æft orðaforðann í tengslum við íþróttir var nemendum skipt í hópa þar sem hver hópur tók fyrir eina íþróttagrein. Unnið var á fartölvur þar sem nemendur skrifuðu um íþróttirnar og fundu myndir við hæfi. Loks kynntu þau verkefni sín fyrir samnemendum og svo voru þau hengd upp.