Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann - frábær árangur

09.10.2013
Göngum í skólann - frábær árangurDagana 5. september – 2. október tóku nemendur Hofsstaðaskóla þátt í alþjóðlega verkefninu „Göngum í skólann“. Í átta daga var samgöngumáti nemenda skráður en þá daga komu að meðaltali 91% nemenda gangandi eða hjólandi í skólann. Á yngra stiginu komu flestir í 4. bekk gangandi eða hjólandi eða 99% nemenda. Á eldra stiginu komu flestir nemendur í 6. bekk gangandi eða hjólandi eða 98% nemenda. Þetta er frábær árangur hjá nemendum skólans. Eins og flestir vita er Hofsstaðaskóli Grænfánaskóli og þess vegna eru allir nemendur hvattir til að halda áfram að ganga og hjóla í skólann þó að verkefninu sé lokið.
Til baka
English
Hafðu samband