Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gulur dagur í Hofsstaðaskóla

05.04.2014
Gulur dagur í Hofsstaðaskóla

Í Hofsstaðaskóla hafa gegnum tíðina skapast ýmsar hefðir. Ein þeirra er að síðasti kennsludagur fyrir páska er gulur dagur. Föstudaginn 11. apríl eru starfsmenn og nemendur hvattir til þess að mæta í einhverju gulu eða með eitthvað gult í skólann. Undanfarin ár hefur guli dagurinn verið glaðlegur og skemmtilegur dagur enda páskaleyfið handan við hornið.

Páskaleyfið hefst mánudaginn14. apríl og kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 22. apríl.

Stjórnendur og starfsmenn Hofsstaðaskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska og endurnærandi leyfisdaga.
Til baka
English
Hafðu samband