Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Heimsókn vinaleikskóla

10.02.2015
Heimsókn vinaleikskóla

Nemendur af vinaleikskólunum Hæðarbóli, Lundabóli og Ökrum heimsóttu skólann vikuna fyrir vetrarleyfi. Markmiðið var að kynnast Regnboganum tómstundaheimili skólans og borða í matsalnum. Í Regnboganum sagði Vala umsjónarmaður hans frá starfseminni þar auk þess fengu börnin að fara á nokkur leiksvæði og hlusta á tónlistarflutning. Einnig voru nemendur duglegir að borða í matsalnum en þar var m.a. boðið upp á skólabjúgu, hamborgara og fisk.

Myndir frá heimsókn Akra eru á myndasíðu 1. bekkja

Til baka
English
Hafðu samband