Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vor í lofti og hreinsun á skólalóð

19.04.2015
Vor í lofti og hreinsun á skólalóðUm leið og snjóa leysti nýttu vinabekkirnir 1.GÞ og 5.ÖM tækifærið til að fara út á skólalóð og taka til hendinni. Nemendur fengu afhenta gúmmíhanska og fóru svo saman út á skólalóð Hofsstaðaskóla og tíndu heilmikið rusl sem safnast hafði saman yfir veturinn. Krakkarnir voru sérlega duglegir og þeim tókst að setja heilmikið í pokana. Óhætt er að segja að skólalóðin hafi fengið nýtt og fallegra yfirbragð enda leyndist víða rusl þegar að var gáð. Fleiri bekkir munu fylgja í kjölfarið og taka til hendinni í næsta nágrenni skólans. 
Til baka
English
Hafðu samband