Skólabyrjun haustið 2015
Skólastarf hefst að loknu sumarleyfi með skólasetningu þriðjudaginn 25. ágúst og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst. Tímasetningar verða nánar auglýstar síðar. Nemendur sem hefja nám í 1. bekk mæta í samtal við umsjónarkennara þriðjudaginn 25. ágúst. Tómstundaheimilið Regnboginn opnar fyrir nemendur í 2. – 4. bekk kl. 11.00 á skólasetningardag og fyrir nemendur í 1. bekk miðvikudaginn 26. ágúst. Nýir nemendur í 2. – 7. bekk verða boðaðir í samtal við umsjónarkennara dagana 19. og 20. ágúst.
Skóladagatal skólaársins er að finna hér á vefnum og m.a. neðst á síðunni. Innkaupalistar verða birtir á vefnum miðvikudaginn 19. ágúst og bendum við foreldrum og nemendum á að fara vel yfir hvað þeir geta endurnýtt frá fyrri skólaárum.
Skrifstofa skólans er opin alla daga frá kl. 8.00 – 15.00 og er vakin sérstök athygli á því að símkerfi skólans er óvirkt vegna framkvæmdanna. Fyrirspurnir og tilkynningar má senda á netfangið: hskoli@hofsstadaskoli.is. Einnig má hafa samband við Þjónustuver Garðabæjar í síma 525-8590.