Skemmtileg skemmtun
29.10.2015
Nú hafa krakkarnir í 4.ÁS haldið skemmtun á sal fyrir nemendur á yngra stigi. Skemmtunin fór fram á föstudagsmorguninn 23. október og í kjölfarið var foreldrum boðið á bekkjarkvöld þriðjudaginn 27. október.
Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg og stóðu nemendur sig með prýði. Boðið var uppá dansatriði og skemmtilegar stuttmyndir n.k. örsögur. Áhorfendur í sal voru til fyrirmyndar og virtust skemmta sér hið besta. Færum við 4.ÁS bestu þakkir fyrir skemmtunina.
Við undirbúning nutu krakkarnir aðstoðar Ágústu umsjónarkennara, Önnu Margrétar meistaranema, Unnar tónmenntakennara og Elísabetar kennsluráðgjafa.
Á myndasíðu bekkjarins má nálgast fleiri myndir og hér má nálgast stuttmyndirnar:
Ninjurnar og sundgleraugnastúlkan!