Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Námsgögn nemenda

15.08.2017
Námsgögn nemendaGarðabær mun afhenda nemendum í grunnskólum bæjarins gjaldfrjáls námsgögn og því heyra innkaupalistar sögunni til. Í þessu felst að nemendur fá stílabækur, reikningsbækur, blýanta og annað tilheyrandi.

Foreldrar þurfa áfram að útvega skólatösku, og heyrnartól.

Foreldrar eru hvattir til að nýta ónýttar bækur, rennilásapoka og ritföng sem til eru á heimilum en námsgögnin verða geymd í skólanum og þurfa nemendur að nota sín eigin skriffæri þegar kemur að heimanámi.
Til baka
English
Hafðu samband