Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kór Hofsstaðaskóla

24.08.2017
Kór HofsstaðaskólaKór Hofsstaðaskóla hefur vetrarstarfið föstudaginn 25. ágúst.
Kórinn er fyrir nemendur í 4.-7. bekk. Í kórnum verða sungin fjölbreytt lög, sígild og popplög, keðjusöngvar og sungið í röddum. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri .

Áhugasamir söngfuglar eru velkomnir og óákveðnir nemendur eru velkomnir á æfingu til að kynna sér kórinn.

Æfingar verða á föstudögum kl. 14.00 – 15.00 eða í beinu framhaldi af skólastarfinu.

Stjórnandi kórsins er Unnur Þorgeirsdóttir tónmenntakennari.

Skráning fer fram með því að senda póst á unnur@hofsstadaskoli.is

Það er gaman að syngja í kór, söngurinn göfgar og glæðir auk þess sem félagsskapurinn er skemmtilegur.
Til baka
English
Hafðu samband