HS LEIKAR 30. og 31. október
29.10.2018
![HS LEIKAR 30. og 31. október HS LEIKAR 30. og 31. október](/library/Myndir/2018_2019/Frettamyndir/Mynd1.jpg?proc=ContentImage)
Nemendum er raðað í 38 lið þvert á árganga frá 1. og upp í 7. bekk. Elstu nemendurnir, úr 6. og 7. bekk eru fyrirliðar, stýra hópunum og aðstoða þá sem yngri eru. Helmingur liðanna verður í dagskrá inni í skólanum og hinn helmingurinn úti í íþróttahúsi. Liðin skipta svo um stað seinni daginn. Þeim sem verða í íþróttahúsinu er bent á að hentugt getur verið að vera í íþróttafatnaði eða fötum sem ekki hefta hreyfingu.
Nemendur mæta í skólann á hefðbundum tíma kl. 8.30 og skóladeginum lýkur hjá öllum kl. 14.00. Nemendur þurfa ekki að koma með skólatösku en taka með sér nesti í léttari poka/tösku. Allir þurfa að vera klæddir eftir veðri til útiveru. Tómstundaheimilið Regnboginn er opinn frá kl. 14.00 eins og vant er.
Starfsmenn og stjórnendur skólans óska nemendum góðrar skemmtunar næstu daga og vona að allir njóti sín.