Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lesum meira-Spurningakeppnin

11.02.2019
Lesum meira-Spurningakeppnin
Spurningakeppnin Lesum meira, keppni á milli 7. bekkja, fór fram þriðjudaginn 5. febrúar. Nemendur undirbúa sig fyrir keppnina með því að lesa ýmsar bækur. Valið í keppnisliðið byggir á prófi sem lagt er fyrir nemendur þar sem þeir spreyta sig á að svara spurningum úr bókunum og þeir sem ná bestum árangri landa sæti í keppnisliðinu. Liðin mega svo í valspurningahlutanum leita til bekkjarins eftir aðstoð.
Mikil stemning og samstaða var innan bekkja en hver bekkur var búinn að auðkenna sig með sínum lit, bleiku, bláu eða hvítu. Ólafur Pétursson kennari var spyrill og leiddi hann spurningakeppnina sem skiptist í fjóra hluta: Hraðaspurningar, vísbendingaspurningar, leikin orð og valflokka. Keppnin var afar spennandi en nemendur í 7. SJ tóku forskotið undir lokin og unnu keppnina með örfáum stigamun. Keppendur og áhorfendur skemmtu sér konunglega, stóðu sig frábærlega og gengu glaðir út í daginn.

Sjá fleiri myndir á myndasíðu 7. bekkja



Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband