Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vímuvarnarhlaup Lions

16.05.2019
Vímuvarnarhlaup Lions

Mikil stemning myndaðist í tengslum við árlega Vímuvarnarhlaupið sem fram fór föstudaginn 10. maí. Það er Lionsklúbburinn Eik sem stendur fyrir hlaupinu í 5. bekkjum grunnskóla Garðabæjar. Tilgangurinn er að vekja börnin til umhugsunar með því að gera þau meðvituð um ábyrgð á eigin lífi, velferð og hamingju. Alex Þór Hauksson knattspyrnumaður í meistaraflokki Stjörnunnar mætti á vegum Lionsklúbbsins Eikar og talaði við nemendur um heilbrigt líferni og markmiðasetningu áður en hlaupið hófst.
Hvatningaorð og söngvar settu svip á Vímuvarnarhlaupið en allir nemendur skólans mættu og hvöttu keppendur óspart. Þrjár stúlkur og þrír drengir voru í liðum 5. bekkja auk varamanna. Lið 5. AÞ vann keppnina að þessu sinni og fengu vinningahafar verðlaunapening og bekkurinn bikar til varðveislu í eitt ár. Auk þess fengu allir keppendur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.

 Sjá fleiri myndir frá Vímuvarnarhlaupinu á myndasíðu skólans 2018-2019

Til baka
English
Hafðu samband