Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Opið hús og innritun í grunnskóla haustið 2020

02.03.2020
Opið hús og innritun í grunnskóla haustið 2020

Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2020 verður haldinn í skólanum þriðjudaginn 3. mars nk. kl. 17:30-18:30. Gestum er boðið að skoða skólann og frístundaheimilið Regnbogann. Starfsmenn kynna helstu áherslur í skólastarfinu í máli og myndum. Foreldrar annarra nýnema í 2. – 7. bekk eru velkomnir á kynninguna. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta skráð sig á skrifstofu skólans og fá þá boð um aðra kynningu eftir samkomulagi.

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2014) og 8. bekk (f. 2007) fer fram dagana 9.-13. mars nk. á Mínum Garðabæ. Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Í Garðabæ velja foreldrar í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt. Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.
Nánari upplýsingar um innritun má finna hér.

Innritun í frístundaheimili

Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram dagana 9.-13. mars nk. Sama gildir fyrir sérstækt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Innritunin fer fram rafrænt á Mínum Garðabæ. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum.
Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.

Verið velkomin í Hofsstaðaskóla

Til baka
English
Hafðu samband