Skipulag í Hofsstaðaskóla á neyðarstigi
02.11.2020
Skipulag skólastarfs dagana 3. til 17. nóvember verður eftirfarandi:
- Nemendur mæta stundvíslega kl. 8.30, ekki fyrr.
- Skóladegi lýkur kl. 12.30.
- Frístundaheimilið Regnboginn verður opinn frá því að skóla lýkur og til kl. 17.00.
- Lögð er rík áhersla á að allir nemendur mæti í skólann.
- Nemendur hafa með sér nesti og vatnsbrúsa séu þeir ekki þegar með hann í skólanum.
- Hádegismatur frá Skólamat verður snæddur í kennslustofum. Því miður er ekki hægt að nota örbylgjuofn eða grill þessa daga sem takamarkanir gilda.
- Grímuskylda er í 5. – 7. bekk og koma nemendur með grímur að heiman.
- Nemendur þurfa að vera klæddir til útiveru alla daga.
- Stundaskrár bekkjardeilda gilda að mestu leiti með smávægilegum breytingum.
- Nemendur halda sér í sínum bekk/hópi og er ekki blandað í hringekjur, færnimiðaða hópaeða smiðjur.
- Áfram eru takmarkanir í íþróttakennslu og sundkennsla fellur niður.
- Umsjónarkennarar munu upplýsa ykkur nánar um skipulag innan árganga.
- Foreldrum og aðstandendum er ekki heimilt að koma í skólann nema brýna nauðsyn beri til og þá hafa þeir samband áður.
Með samstarfskveðju og góðum óskum
Hafdís Bára og Margrét
skólastjórar