Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýjar upplýsingar um hagi og líðan barnanna okkar. Upplýstir og virkir foreldrar eru besta forvörnin!

07.04.2021
Nýjar upplýsingar um hagi og líðan barnanna okkar. Upplýstir og virkir foreldrar eru besta forvörnin!

Miðvikudag 7. apríl kl. 20:00 – opinn fundur í beinu streymi

  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu kynnir niðurstöður nýjustu könnunar á á högum og líðan grunnskólabarna í 8., 9., og 10. bekk.
    Könnunin var framkvæmd í febrúar 2021 meðal nemenda í 5.-10. bekk í öllum skólum landsins. Í könnuninni er spurt um hegðun og líðan barnanna, notkun samfélagsmiðla og tölvuleikja, heilsu og líðan, svefn og klámnotkun. Skoða má niðurstöður könnunarinnar á landsvísu á vefnum https://www.rannsoknir.is.
  • Fulltrúar frá Grunnstoð Garðabæjar (fulltrúar foreldrafélaga í grunnskólum Garðabæjar) segja í byrjun fundar frá grunnstoðinni og foreldrarölti sem er verið að setja af stað aftur í maí eftir nokkurra ára hlé.

    Við hvetjum foreldra barna og ungmenna í Garðabæ til að þess að nýta þetta frábæra tækifæri til þess að fá upplýsingar um líðan barnanna okkar og hvað raunverulega er að gerast í umhverfinu okkar.

    Fundurinn verður í beinu streymi hér á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu Garðabæjar og foreldrar allra árganga grunnskólabarna og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum. Hægt er að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur í gegnum fésbókarsíðu Garðabæjar.

    Sjá viðburð á fésbókarsíðu Garðabæjar.
Til baka
English
Hafðu samband