Líðan ungmenna í Garðabæ
![Líðan ungmenna í Garðabæ Líðan ungmenna í Garðabæ](/library/Myndir/Fjolnota-myndir/2021-2022/Frettamyndir-2021_2022/mynd0582-utikennsla-vid-vifilsstadavatn-30.-sept.-2021-flataskoli.jpg?proc=ContentImage)
Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu kynnir niðurstöður nýjustu könnunar á á högum og líðan grunnskólabarna í 8., 9., og 10. bekk, miðvikudaginn 27. apríl nk. kl. 20 í Sveinatungu.
Könnunin var framkvæmd meðal nemenda í 5.-10. bekk í öllum skólum landsins. Í könnuninni er spurt um hegðun og líðan barnanna, notkun samfélagsmiðla og tölvuleikja, heilsu og líðan, svefn og klámnotkun. Skoða má niðurstöður könnunarinnar á landsvísu á vefnum https://www.rannsoknir.is.
Fundurinn verður einnig í beinu streymi á facebooksíðu Garðabæjar miðvikudaginn 27. apríl kl. 20.
Við hvetjum foreldra barna og ungmenna í Garðabæ til að þess að nýta þetta frábæra tækifæri til þess að fá upplýsingar um líðan barnanna okkar og hvað raunverulega er að gerast í umhverfinu okkar.
Fundurinn verður í beinu streymi hér á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu Garðabæjar og foreldrar allra árganga grunnskólabarna og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum. Hægt er að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur í gegnum fésbókarsíðu Garðabæjar.