Jólastund 20. desember og jólaleyfi
15.12.2022
![Jólastund 20. desember og jólaleyfi Jólastund 20. desember og jólaleyfi](/library/Myndir-samnytt/krans.jpg?proc=ContentImage)
Nemendur mæta á jólastund í bekkjarstofu með sparinesti t.d. smákökur, sætabrauð og safa eða kókómjólk. Hver bekkur á notalega samverustund og síðan er farið í salinn og dansað í kringum jólatréð. Foreldrafélagið hefur samið við jólasveina um að kíkja í heimsókn á jólaballið. Að lokinni dagskrá hefst jólaleyfi nemenda. Kennsla hefst á nýju ári mánudaginn 2. janúar.
Frístundaheimilið Regnboginn er opinn frá virka daga frá 21. – til 30.12 fyrir þau börn sem þar eru skráð.
Starfsfólk skólans sendir nemendum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur og óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári um leið og þakkað er fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.