Hofsstaðaskólaleikar 2023
![Hofsstaðaskólaleikar 2023 Hofsstaðaskólaleikar 2023](/library/Myndir/2019-2020/Allir-argangar-2019_2020/HS-leikar/IMG_8509 (1024x683).jpg?proc=ContentImage)
Fimmtudaginn 9 . nóvember og föstudaginn 10. nóvember verða hinir árlegu Hofsstaðaskólaleikar eða HS leikar.
Báða dagana hefst skóladagurinn kl. 8:30 og lýkur kl.13:35. Regnboginn hefst strax að loknum skóladegi fyrir þá sem þar eru skráðir.
Bæði stundatöflur og nemendahópar breytast. Lögð er áhersla á samvinnu nemenda í aldursblönduðum hópum, gleði og gaman í bland við það að leysa fjölbreytt verkefni. Hóparnir fara á 18 stöðvar í íþróttahúsinu og 18 stöðvar í skólanum sitthvorn daginn.
Nemendur þurfa ekki að hafa með sér skólatösku þessa daga, aðeins morgunnesti, vatnsbrúsa í bakpoka og hádegismat fyrir þá sem eru ekki í ásk rift
eða kaupa matarmiða. Á fimmtudeginum verður spagetti bolognese og á föstudeginum verður pizza í matinn. Þeir sem eru ekki í mataráskrift geta keypt pizzumiða á 850 kr. Miðarnir verða seldir í matsalnum frá þriðjudegi til fimmtudags.