Netumferðarskólinn heimsótti 4. og 5. bekk í Hofsstaðaskóla
03.05.2024
Þann 26. apríl fengu nemendur í 4. og 5. bekk heimsókn frá Netumferðarskólanum. Netumferðarskólinn er fræðsla sem miðar að því að fræða um netöryggi barna í stafrænni tilveru, persónuvernd og miðlalæsi. Skúli Bragi frá Netumferðarskólanum fræddi nemendur um stafrænt fótspor, algóritma og samskipti á netinu. Hann ræddi meðal annars um mikilvægi þessa að beita gagnrýnni hugsun á efni og upplýsingar af netinu. Einnig var farið yfir reglur varðandi myndbirtingar og aldurstakmörk á hinum ýmsu miðlum. Fræðslan var blanda af fyrirlestri, hópverkefnum og samtali við börnin. Krakkarnir hlustuðu af athygli og tóku virkan þátt. Við þökkum Netumferðarskólanum kærlega fyrir komuna.