Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Samskipti, skýr mörk og samfélagsmiðlar

19.10.2024
Samskipti, skýr mörk og samfélagsmiðlarÞann 16. október fengu nemendur í 6. bekk fræðslu um samfélagsmiðla, samskipti og að setja mörk í samskiptum. Þau Kári Sigurðsson og Andrea Marel sáu um fræðsluna undir nafninu Fokk me – fokk you. Fræðslan byggir á margra ára reynslu af starfi með ungu fólki, samtölum við börn og unglinga, fyrirspurnum, reynslusögum og skjáskotum frá ungmennum. Rætt var um þá þætti sem hafa áhrif á mótun sjálfsmyndar og nemendur vaktir til umhugsunar um hvað það er sem hefur áhrif á okkur frá degi til dags. Farið var inn á mikilvægi virðingar í samskiptum hvort sem um er að ræða samskipti á samfélagsmiðlum eða í eigin persónu. Einnig var talað um að virða sín mörk og annarra, farið yfir algengar birtingarmyndir neikvæðra samskipta, áreitni og ofbeldis á stafrænu formi og bent á leiðir til bregðast við slíku. Þetta viðfangsefni er þarft að ræða við nemendur og kennarar munu gripa boltann og halda umræðunni áfram innan hvers bekkjar.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband