Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

„Veist þú hvað barnið þitt er með í bakpokanum?“ - Fræðslufundur fyrir forráðafólk

06.11.2024
„Veist þú hvað barnið þitt er með í bakpokanum?“ - Fræðslufundur fyrir forráðafólk„Veist þú hvað barnið þitt er með í bakpokanum?“ er yfirskrift fundar sem haldinn verður með forráðafólki barna og unglinga í Garðabæ 12. nóvember kl. 20:00 í Sjálandsskóla. Fundurinn er haldinn í tengslum við forvarnarviku Garðabæjar sem stendur yfir dagana 1. - 8. nóvember 2024.

Fulltrúar frá samfélagslöggunni, forvarnarverkefni Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu, verður með fræðslu og þau Sigríður Elísabet Ragnarsdóttir og Skúli B. Geirdal halda erindi. Þá gefst tími fyrir umræður.

Forráðafólk barna og unglinga í Garðabæ eru hvatt til að mæta.

DAGSKRÁ:

20:00 – Fundarstjóri opnar fundinn
Ávarp Almars Guðmundssonar bæjarstjóra Garðabæjar
Vopnaburður og viðbrögð lögreglunnar – Samfélagslöggan kíkir í heimsókn
„Jákvætt starf félagsmiðstöðva í Garðabæ“ – Sigríður Elísabet Ragnarsdóttir, forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Elítunni
„Stýrir algóritminn uppeldi þinna barna?“ – Skúli B. Geirdal
Umræður
Fundarslit – Hrannar Bragi Eyjólfsson formaður ÍTG
Til baka
English
Hafðu samband