Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

19.01.2016

Jákvæð og örugg netnotkun

Jákvæð og örugg netnotkun
Hafþór Birgisson frá Saft var með fræðslufund fyrir nemendur í 4. bekk og foreldra þeirra um jákvæða og örugga netnotkun barna í dag, þriðjudaginn 19. janúar. Í erindi sínu kom hann inn á að internetið er frábær upplýsingaveita og tæki til samskipta...
Nánar
13.01.2016

Nýtt smáforrit sem eflir lestur

Nýtt smáforrit sem eflir lestur
Þriðjudaginn 12. janúar kom út nýtt smáforrit Study Cake sem hefur það að markmiði að efla börn dagsins í dag til þess að lesa. Forritið býður foreldrum upp á að verðlauna börn fyrir lestur. Börnin fá „heilasellur“ fyrir að leysa ákveðin mörg...
Nánar
13.01.2016

1.bekkur heimsækir vinaleikskólana

1.bekkur heimsækir vinaleikskólana
Nemendur í 1. bekk heimsóttu vinaleikskólana Hæðarból, Akra og Lundaból í desember. Það var tekið vel á móti nemendum sem tóku m.a. þátt í hreyfistund, fengu að leika sér, föndruðu og sungu jólalög. Í janúar og febrúar koma leikskólanemendur í...
Nánar
12.01.2016

Lestrarátak Ævars vísindamanns

Lestrarátak Ævars vísindamanns
Hvetjum alla nemendur til lesturs. Þann 1. janúar hófst lestrarátak Ævars vísindamanns. Átakið stendur til 1. mars 2016 og er fyrir alla krakka í 1.-7. bekk. Lestrarátakið virkar þannig að fyrir hverjar þrjár bækur sem nemendur í 1. - 7. bekk lesa...
Nánar
19.12.2015

Gleðileg jól 2015

Gleðileg jól 2015
Starfsfólk Hofsstaðaskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla. Þökkum liðnar stundir og hlökkum til gleðilegs nýs árs. Megi það færa okkur öllum farsæld og frið. Kennsla hefst aftur þann 5. janúar samkvæmt stundaskrá.
Nánar
17.12.2015

Jólaskemmtanir 18. desember

Jólaskemmtanir 18. desember
Föstudaginn 18. desember eru jólaskemmtanir í Hofsstaðaskóla. Hefðbundin stundaskrá fellur niður. Nemendur og starfsmenn mæta í betri fötum á jólaskemmtun. 1., 2. og 3. bekkur kl. 9.00 – 11.00 4. og 7. bekkur sjá um skemmtiatriði.Þeir nemendur...
Nánar
15.12.2015

Rithöfundur í heimsókn

Rithöfundur í heimsókn
Rithöfundurinn Guðni Líndal Benediktsson kom í heimsókn á bókasafn Hofsstaðaskóla og las úr bók sinni Leyndardómur erfingjans fyrir nemendur í 5. og 6. bekkjum skólans. ​
Nánar
15.12.2015

2.GÞ heimsækir Þjóðleikhúsið

2.GÞ heimsækir Þjóðleikhúsið
2.GÞ fór í heimsókn í Þjóðleikhúsið. Vel var tekið á móti börnunum og þau fengu að skoða húsið hátt og lágt og skyggnast á bak við tjöldin í orðsins fyllstu merkingu! Skoðaðir voru ótal sýningarsalir og mikla lukku vakti að skoða leiksal og leikmuni...
Nánar
14.12.2015

Rauður dagur 15. desember

Rauður dagur 15. desember
Venju samkæmt er s.k. Rauður dagur​ í Hofsstaðaskóla í desember. Að þessu sinni varð þriðjudagurinn 15. desember fyrir valinu. Í tilefni dagsins mæta allir, nemendur og starfsmenn í rauðum klæðum eða skreyta sig með rauðum lit. Kokkarnir hjá Skólamat...
Nánar
10.12.2015

Heimsókn í Tónlistarskóla Garðabæjar

Heimsókn í Tónlistarskóla Garðabæjar
​Nemendum í 2. og 3. bekk, ásamt kennurum, var boðið á jólatónleika í Tónlistarskóla Garðabæjar miðvikudaginn 9. desember. Gengið var frá Hofsstaðaskóla í Tónlistarskólann í fallegu vetrarveðri. Nemendur og kennarar Tónlistarskólans tóku vel á móti...
Nánar
08.12.2015

Dagskrá í desember

Dagskrá í desember
Hver árgangur sendir heim yfirlit yfir viðburði sem eru á þeirra vegum. Sameiginlegir viðburðir allra nemenda eru sem hér segir: Rauður dagur og jólamatur - þriðjudaginn 15. desember Starfsmenn og nemendur borða jólamat saman í matsalnum. Allir...
Nánar
08.12.2015

Skóli í dag

Góðan dag, skólinn er opinn og kennsla samkvæmt stundaskrá. Búist er við því að einhverjir verði seinna á ferðinni en venjulega​ og mikilvægt að fylgja yngri börnunum í skólann. Ákvörðun um það hvort nemendur fari út í frímínútum verður tekin þegar...
Nánar
English
Hafðu samband