Fjölgreindarleikar Hofsstaðaskóla 2011

Fjölgreindarleikar Hofsstaðaskóla verða haldnir 1. og 2. nóvember. Þá er hefðbundið skólastarf leyst upp og nemendur skólans vinna saman að fjölbreyttum verkefnum. 
Á leikunum er fjölgreindarkenning Howard Gardners höfð að leiðarljósi. Markmið leikanna er m.a. að allir fái að njóta sín með einhverjum hætti og efla kynni við aðra í skólanum í leiðinni. 
Nemendum er skipt upp í 34 hópa sem í eru 13 nemendur og elstu nemendurnir eru fyrirliðar. Hópurinn vinnur saman að því að leysa fjölbreytt verkefni sem reyna á ýmsar færniþætti eða greindir. Á hverri stöð fær hópurinn stig fyrir frammistöðu og framkomu liðsmanna. 
Annan daginn vinna nemendur í íþróttahúsinu og hinn daginn í skólanum, samtals á 34 stöðvum. 
Báða dagana lýkur skóladegi kl. 13:45 hjá öllum nemendum. Tómstundaheimilið Regnboginn hefst strax að loknum skóladegi fyrir þá sem þar eru skráðir. Nemendur þurfa ekki að hafa með sér skólatösku í skólann þessa daga aðeins poka/tösku með nesti. Matur verður fyrir þá sem eru í áskrift en hinir hafa með sér hádegisnesti. Hafið í huga að nemendur borða ekki nesti í sinni heimastofu þannig að gott er að hafa með sér brúsa til að drekka úr. 
Hádegisnesti þarf að vera þannig útbúið að ekki þurfi að hita það. 
Kveðja stjórnendur Hofsstaðaskóla
