Öskudagur 2012

Á öskudag miðvikudaginn 22. febrúar ætlum við að eiga skemmtilega stund saman í skólanum, starfsfólk og nemendur. Skólastarf hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 12:15 að loknum hádegismat. Eins og aðra daga hafa nemendur með sér hollt og gott nesti í morgunhressingu og þeir sem ekki eru í mataráskrift hafa einnig með sér hádegismat. Athugið ekki verður hægt að hita í örbylgjuofni né grilli þennan dag þar sem hluti nemenda borðar hádegismat í stofum. 
Mælst er til að nemendur mæti í einhvers konar búningi. Vopn sem fylgihlutir við búninga eru leyfð en ekki til að berjast með. 
Fjölbreyttar stöðvar verða í boði til dæmis: 
• Andlitsmálun 
• Diskótek 
• Grímugerð 
• Hreyfing í íþróttahúsi 
• Kubbar 
• Limbó 
• Spákonur 
• Spil 
• Tölvur 
• Öskupokasaumur 
Foreldrar eru velkomnir í skólann. 
Regnboginn: Nemendur sem eru alla jafnan í tómstundaheimilinu eftir skóla geta farið þangað kl. 12:15 þegar skóla lýkur. Vinsamlega láta vita í Regnbogann á netfangið gretas@hofsstadaskoli.is ef þið ætlið ekki að nýta ykkur það. 
Bestu kveðjur, skólastjórnendur 
