Verðlaun í teiknisamkeppni grunnskólanna

Okkar maður, Manúel Breki Geirsson í 4. GG hlaut verðlaun í teiknisamkeppni grunnskólanna. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tilkynnti í síðustu viku úrslit í samkeppninni. Tíu nemendum eru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar að loknu vali á úrtaki mynda sem lagt var fyrir menntamálaráðherra, sem jafnframt er formaður dómnefndar. 
Í keppnina bárust um 1000 myndir frá 46 skólum og var mikið af fallegum og skemmtilegum myndum í keppninni. 
Vinningshafa voru eftirfarandi: 
Jenný Ólöf Guðbrandsdóttir 4. EJ Ártúnsskóla Reykjavík 
Austéja Stasinskaite 4. ÞÓ Fellaskóla Reykjavík 
Sara Mantero 4.1 Húsaskóla Reykjavík 
María Mínerva Atladóttir 4. B Vesturbæjarskóli Reykjavík 
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir 4. PR Lindaskóla Kópavogi 
Kolbrún Tinna Hauksdóttir 4. Hófsóley Vatnsendaskóli Kópavogi 
Manúel Breki Geirsson 4. GG Hofstaðaskóla Garðabæ 
Vikingur Leon Þórðarson 4. bekkur Blönduskóla Blönduósi 
Ásgrímur Þór Ásgeirsson 4. bekkur Brúarásskóla Egilsstöðum 
Íris Ósk Mikaelsdóttir 4. bekkur Egilsstaðaskóla Egilsstöðum 
Hægt er að skoða vinningsmyndirnar á www.skolamjolk.is undir liðnum myndir (http://skolamjolk.is/Myndir/125/158/1/7/default.aspx)  
 
Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins stendur að keppninni hér á landi. Markmið keppninnar er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. Neysla mjólkur hefur aukist í grunnskólum á undanförnum árum, sem m.a. má rekja til mjólkurkælivéla sem víða hafa verið settar upp í skólunum. 
Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Að því tilefni, sem fyrr segir, fer árlega fram hér á landi teiknisamkeppni meðal nemanda í fjórða bekk í grunnskólum landsins. Eru verðlaunateikningarnar notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins sem fram fer í september ár hvert.
Kíkið á nokkrar myndir af Manúel og nemendum í 4.GG

