Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Útivistartími barna breytist 1. september

31.08.2024
Útivistartími barna breytist 1. september

Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir. 

Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.

Sömu opinberu reglur gilda því um öll börn í sama árgangi. Ýmsar ástæður eru fyrir því að takmarka útivist barna og unglinga á kvöldin. Helstar eru:

  • Nægur svefn er mikilvæg forsenda góðrar heilsu, vellíðunar og árangurs í skólanum.
  • Það að vera komin heim á skikkanlegum tíma og eiga smástund heima fyrir háttinn hjálpar vaxandi fólki að fara fyrr að sofa.
  • Þreytt og illa sofið fólk er líklegra til að lenda í slysum og óhöppum, sérstaklega þegar skyggja tekur.
  • Börn og unglingar sem eru úti langt fram á kvöldin eru líklegri til að fara fyrr að fikta við tóbak, áfengi og fíkniefni.

Reglur um útivistartíma segja til um hvað börn mega vera lengi úti en ekki hvað þau eiga að vera lengi úti. Foreldrar geta að sjálfsögðu sett sínar eigin reglur innan ramma útivistarreglna.

Með góðri kveðju, umboðsmaður barna

Til baka
English
Hafðu samband